Opið í dag

12:00-18:00

Sumarnámskeið: Menningarkrakkar 6-9 ára

29.05.2026

Gerðarsafn býður upp á tvö námskeið í sumar fyrir 6-9 ára börn. Skráning er hafin á Abler ✍️

https://www.abler.io/shop?country=IS&mode=programs…

Myndlistarnámskeið 6. – 10. júlí, 20 pláss

Á námskeiðinu fá krakkar að kynnast ýmsum gerðum myndlistar. Þau munu búa til skúlptúra, teikna, ljósmynda, mála og vinna í allskyns efni!

Meðfram myndlistarkennslu verður lögð áhersla á útileiki og hópefli.

Á síðasta degi námskeiðisins, föstudaginn 10. júlí verður foreldrum og forráðamönnum boðið að koma og sjá afrakstur vikunnar.

Námskeiðið stendur í fjóra tíma, frá 9:00 – 13:00 og mikilvægt er að koma klædd eftir veðri með léttan bita og hádeigisnesti.

Bókagerð: 13. – 17. júli, 20 pláss

Í þessu námskeiði læra börn að gera sínar eigin teiknibækur frá grunni! Á námskeiðinu verður kennt allt frá pappírsgerð til teikningar og í lok námskeiðisins munu börnin eiga sína eigin skissubók með eigin teikningum.

Á síðasta degi námskeiðisins, föstudaginn 17. júlí verður foreldrum og forráðamönnum boðið að koma og sjá afrakstur vikunnar.

Meðfram myndlistarkennslu verður lögð áhersla á útileiki og hópefli.

Námskeiðið stendur í fjóra tíma, frá 9:00 – 13:00 og mikilvægt er að koma klædd eftir veðri með léttan bita og hádegisnesti.