Fimmtudaginn 23. júlí mun gjörningahópurinn Ymja með öllu sem er hluti af Skapandi sumarstörfum Molans fremja gjörning á Gerðarsafni í sex klukkustundir, milli kl. 12-18. Með gjörningnum leitast þær við að eiga í samtali við enska listamanninn Jeremy Deller en sýning hans Landlæg hamingja stendur nú yfir á safninu.
Í verkum sínum tekur Deller það sem að fólk þekkir úr sínu umhverfi og skoðar það í nýju ljósi. Árið 1993 hélt listamaðurinn sýningu á heimili foreldra sinna þar sem hann bjó enn vel undir þrítugt. Verkin hans frá þessum tíma voru lítil og upp til hópa látlaus en hann stillti þeim upp inn á milli hversdagslegu hlutanna sem er að finna á venjulegu heimili. Með þessu öðluðust þau nýja merkingu og umbreyttu rýmunum í nýja heima. Listakonur Ymju með öllu gera tilraun til þess að snúa þessu á hvolf og færa hversdaginn inn á listasafnið sem rými.
Er hægt að gera það að heimili sínu og ef svo er, verður það að vera áhugavert? Líf annarra eru nógu spennandi til þess að fylgjast með þeim á samfélagsmiðlum en eru þau nógu áhugaverð til þess að vera til sýnis á listasafni? Ef verkin eru hversdagsleg og gjörðirnar eru hversdagslegar verður listasafnið sömuleiðis hversdagslegt?