Opið í dag

12:00-18:00

Krakkaveldi – kosningasmiðja (7-11 ára)

26.08.2026
15:00
–18:00

Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, en samt verður fimmtungur þjóðarinnar útilokaður frá því að segja sína skoðun á kjörstað: börn!

Krakkaveldi vill breyta því og býður krökkum í smiðju miðvikudaginn 26.ágúst, til að undirbúa gjörning krakka á kosningadag 29.ágúst. Við hvetjum alla krakka sem finnst ósanngjarnt að fá ekki að taka þátt í ákvarðanatöku um framtíð sína til að mæta!

Ath: Í smiðjunni búa þátttakendur til gjörning sem verður framkvæmdur á kosningadag 29.ágúst. Það er því mikilvægt að börn sem taka þátt í smiðjunni komist líka þann 29. ágúst.

Aldursviðmið: 7-11 ára en öll börn eru velkomin.

Smiðjan er skipulögð í samtali við sýningu Jeremy Deller, Landlæg hamingja, á Gerðarsafni.

Meðfylgjandi ljósmynd er eftir Sigríður Rut Marrow