Opið í dag

12:00-18:00

Valgerður

16.09.2026
–25.01.2026
Valgerdur-Briem-1
Valgerður Briem (1914-2002)

Yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem (1914–2002) opnar í Gerðarsafni miðvikudaginn 16. september 2026.

Myndlistin gerir okkur kleift að opna hugann fyrir því sem liggur handan hins áþreifanlega. Hún opnar fyrir tengsl, víddir og hugarheima sem verða hvorki mældir né útskýrðir með orðum einum. Í listinni verða innsæi, ímyndunarafl og reynsla að leiðum til þekkingar. Valgerður Briem helgaði ævi sína þessari leit. Hún leitaði nýrra leiða til að þjálfa skynjun, efla það sem hún kallaði myndvit og opna augu fólks fyrir heiminum. Í listsköpun sinni og kennslu vann hún óhrædd á mörkum myndlistar, leturs, textíls, hönnunar og handverks. Fyrir henni voru þessir miðlar ekki aðskildir heldur ólíkar birtingarmyndir sömu hugsunar; rannsókn á formi, skynjun og tengslum mannsins við umhverfi sitt. 

Valgerður Briem skipar sérstöðu í íslenskri listasögu. Hún starfaði alla ævi sem kennari og hugmyndasmiður með ótrúlega sköpunarþörf en sýndi eigin verk eiginlega ekkert opinberlega. Samhliða áhrifamiklum kennslustörfum sínum þróaði hún yfir áratugi einstakan myndheim sem spannar teikningar, málverk, letur, munsturgerð, textíl, skúlptúr og rannsóknir á formi. Þótt listsköpun Valgerðar hafi lengi verið á jaðri listasögunnar blasir nú við margbrotin arfleifð sem varpar nýju ljósi á einstakan og frumlegan hugsunarheim íslenskrar myndlistar. Sýningin byggir á umfangsmikilli frumrannsókn á verkum, kennslu og skrifum Valgerðar. Með því að leiða saman verk og hugmyndir hennar frá ólíkum tímabilum verður sýnileg samfelld rannsókn hennar á skynjun, myndviti og skapandi hugsun.

Samhliða sýningunni kemur út bók á vegum Gerðarsafns um list og störf Valgerðar Briem. 

Sýningin og útgáfan eru afrakstur þriggja ára rannsóknarverkefnis á listferli Valgerðar, sem er stýrt af Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede.