Opið í dag

12:00-18:00

Morgunstund í myndlæsi

09.10.2026
10:00
–11:00

Morgunstund í myndlæsi 
9. 10. 2026
10:00-11:00

Morgunstundir í myndlæsi hefjast á ný 9. október!

Viðburðirnir eru fyrir fullorðna föstudaginn 9. október kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri safneignar í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í.

Viðburðurinn er á íslensku

Morgunstund í myndlæsi er viðburðaröð í Gerðarsafni þar sem farið verður eftir aðferðum Sjónarafls. Sjónarafl er kröftugt fyrirmyndarverkefni Listasafns Íslands sem snýr að þjálfun myndlæsis fyrir börn í tengslum við námsskrá skólanna. Með því að nota þær aðferðir sem kynntar eru í Sjónarafli fá þátttakendur lykla sem auðveldar þeim að njóta myndlistar.

Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.
Verkefnið er stutt af Safnasjóði

Dagskrá morgunstunda 2026 er eftirfarandi:

9. október – 10:00 – 11:00
23. október – 10:00 – 11:00
6. nóvember – 10:00 – 11:00
20. nóvember – 10:00 – 11:00
4. desember – 10:00 – 11:00