Opið í dag

12:00-18:00

Gerður Helgadóttir

Abstrakt teikning

Efni Safneign
Stærð  17,4 x 11 cm

Gerður Helgadóttir (1928 – 1975) gerði ófáar teikningar og skissur á ferlinum. Á sýningum sýndi hún gjarnan teikningar með skúlptúrum sínum svo að til yrði hliðstæð heild. Verkið er 17,4 x 11 cm að stærð og notaðist Gerður við blek á pappír. 

Þessi teikning kallast á við geómetrískar höggmyndir Gerðar sem hvelfast um form sem skorin hafa verið í járn og til verður ákveðið innra rými þar sem formin byggja sig inn í. Gerður skapaði líka verk sem hengd voru úr lofti og kallast Svif eða Mobile. Með þeim verkum má segja að hún hafi farið að þróa sinn eigin stíl sem var fíngerðari og grannir járnvírar og form fá að njóta sín. 

Gerður afkastaði miklu á stuttri starfsævi. Sjálf leit hún fyrst og fremst á sig sem myndhöggvara. Eftir nám í Handíðaskólanum fór Gerður til náms í Flórens og París og hlaut þar menntun í klassískri höggmyndagerð og nútíma höggmyndalist. Í París bjó Gerður stærstan hluta starfsævi sinnar og töldu franskir listgagnrýnendur hana vera meðal áhugaverðustu myndhöggvara í borginni á þeim tíma. Gerður var mjög sjálfstæð kona og frumkvöðull í glerlist hér á landi. Erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928–1975) færðu Kópavogsbæ árið 1977 um 1400 listaverk úr dánarbúi listakonunnar en hún lést árið 1975 aðeins 47 ára að aldri. Skilyrði fyrir gjöfinni var að Kópavogsbær skyldi byggja listasafn, sem tengdist nafni Gerðar, geymdi og sýndi verk hennar og héldi að öðru leyti minningu hennar á lofti.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner