Opið í dag

12:00-18:00

Valgerður Briem

Andlitsteikning

Efni Safneign
Stærð  30,5 x 22,5 cm.

Í Gerðarsafni eru um 1640 margvíslegar teikningar eftir Valgerði Briem sem safninu hlotnaðist frá fjölskyldu Valgerðar.

Verkið Sjálfsrýni er 30,5 x 22,5 cm að stærð og er gert með vaxi, lit og olíukrít á pappír. Valgerður skapaði ótal andlitsmynda og byggði hún gjarnarn myndir sínar í formi klasa í stað myndraða. Hún vann mikið með ákveðin þemu og einfaldan kjarna sem verður síðan að flóknu þróunarferli.

Valgerður (1914- 2002) var myndlistarkennari ásamt því að vera listakona. Hún nam myndlist í Svíþjóð á árunum 1945-1947. Valgerður kenndi við myndlista- og handíðaskólann og Austurbæjarskóla og notaðist við fjölbreyttar aðferðir í kennslunni. Ásamt því að kenna sinnti Valgerður list sinni að kappi og skapaði hún m.a. ótal teikningar og vatnslitamyndir. Verk Valgerðar Briem gefa til kynna að um var að ræða einstaklega hæfileika og hugmyndaríka listakonu. Verk hennar urðu aldrei mjög þekkt meðal almennings. Fyrrverandi nemendur Valgerðar vilja meina að mikill frumleiki og metnaður hafi einkennt kennsluna og skólastofuna hjá Valgerði Briem. Hún hvatti nemendur sína til ástríðufullrar tjáningar og lagði mikið upp úr tengslum við skynjun.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner