Opið í dag

12:00-18:00

Magnús Á. Árnason

Landskron, Austurríki

1959
Efni Safneign

Í grein frá 1920 segir Magnús “Listamenn eru hugsjónarmenn, ekki síður en aðrir andans frömuðir. Hvað er þá eðlilegra en þeir setji hugmyndir sínar fram í listaverkum?”.

Verkið sem nefnist Landskron, Austurríki er frá árinu 1959 og er málað á pappír. Það er 49 x 70 cm að stærð. Depilstíll (e. pointillism), stíll síðimpressjónistanna, fór að einkenna mörg verk Magnúsar á sjötta áratugnum og þá sérstaklega verk hans frá Frakklandi. Hann fylgdi þó ekki depilstílnum til hins ítrasta á hefðbundinn hátt.

Listamaðurinn Magnús Á. Árnason (1894 -1980) var margt til lista lagt, hann var myndlistarmaður, tónskáld og rithöfundur. Magnús var mikill náttúruunnandi og málaði hann mikið af landslagsverkum. Hann fór til Kaupmannahafnar í nám árið 1912 og hófst listferill hans þá. Magnús ætlaði sér að verða portrett málari í upphafi listferils síns, en byrjaði síðan að mála landslagsmyndir með vatnslitum þegar systurdóttir hans dó, en hún hafði verið hans helsta fyrirsæta. Magnús dvaldi í Bandaríkjunum í rúm 12 ár og stundaði meðal annars nám þar. Hann giftist listakonunni Barböru Moray Williams Árnason og hlotnaðist Gerðarsafni sá heiður að eignast mikið af verkum eftir þau hjónin.

Björn Th. Björnsson skrifaði eftirfarandi um Magnús: „Þeim sem aðeins kynntust tignu ljúflyndi og persónu fágun Magnúsar Á. Á Árnasonar gætu ef til vill virzt að slíkt jaðraði við skapleysi. En það var öðru nær. Þegar um var að tefla réttlát baráttumál bræðra hans og systra í listinni, þegar réttlætiskennd hans var misboðið eða sjálfstæðisbaráttan nýja kvaddi upp menn, þá reis til liðs allt annar Magnús, sem skorti hvorki skoðanir né skap.”

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner