Opið í dag

12:00-18:00

Barbara Árnason

Tjörn

1936
Efni Safneign

Listakonan Barbara Árnason kom fyrst til Íslands árið 1936, en hún fæddist í Suður-Englandi. Barbara bjó í Reykjavík fyrstu árin eftir komuna til Íslands með eiginmanni sínum og listamanninum Magnúsi Á. Árnasyni, en þau fluttust síðan í Kópavoginn árið 1959. Árið 2011 var opnuð yfirlitssýning á verkum Barböru í Gerðarsafni og voru hinar nákvæmu tréstungur hennar þar meðal annars til sýnis. Tréstungan eða xylografían er unnin í endavið. Eitt af því sem gerir tréstungur vandasamt listform er að aðeins er hægt að teikna útlínur verksins í viðinn en annað þarf að móta jafnóðum með hnífi. Það er því lítið svigrúm fyrir mistök.

Barbara var mikill brautryðjandi í þrykklist hér á landi og má segja að hún hafi átt stóran þátt í að leggja grunn að íslenskri svartlist. Hún fór ávallt sínar eigin leiðir og aðhylltist ekki ákveðna listastefnu. Á sumrin fór Barbara í ferðalög um landið í leit að innblæstri fyrir myndefni. Óhætt er að segja að það er Gerðarsafni mikils virði að eiga jafn stóran hluta af verkum Barböru og raun ber vitni.

Verkið Tjörn (1936) er grafík mynd þar sem gríðarlega nákvæm tréstunga listakonunnar fær að njóta sín. Í verkinu má sjá einstaklega fáguð vinnubrögð og greinilega vísun í náttúruna.

Mikil hreyfing og flæðandi þörungar í tjörninni skapa ákveðna mýkt í verkinu og samspil ljóss og skugga er afar hrífandi.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner