
Verkið Varðeldur (pólska sveitin) er blekteikning frá árinu 2021, 150 × 200 cm að stærð. Í miðju verksins logar eldur sem er umkringdur þéttum og iðandi gróðri. Augað dregst að björtum eldinum í miðjunni, sem lýsir upp umhverfið í kring.
Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) er afar fjölhæfur listamaður; myndlistarmaður, söngvari og sögumaður, meðal annars. Hann er fæddur í Reykjavík en hefur verið búsettur í Amsterdam og Berlín.
Styrmir nam við Gerrit Rietveld Academie og Sandberg Instituut. Hann hefur sýnt verk sín víða um heim, meðal annars í Ujazdowski Castle Centre for Contemporary Art í Varsjá, Contemporary Art Centre Vilnius og Casa del Lago í Mexico City. Hann tók einnig þátt í listahátíðinni Unfair í Amsterdam.
Styrmir Örn var einn af listamönnum sýningarinnar Skúlptúr, skúlptúr, performans, sem sýnd var í Gerðarsafn í lok árs 2025. Hann vinnur þvert á miðla og hefst sköpunarferlið oft á skrifum, sögum eða ljóðum sem gæti þróast yfir í gjörning þar sem hlutir fá nýtt hlutverk og mynda heildstætt verk. Hinir ólíku miðlar hafa áhrif hver á annan.