Open today

12:00-18:00

Valtýr Pétursson

Án titils

Material Collection property
Size  26,9 x 35 cm

„Öll myndlist er abstrakt og öll myndlist er fígúratíf. Þetta er allt samofið.” Þetta sagði Valtýr Pétursson í viðtali við Morgunblaðið árið 1975.

Listmálarinn og listgagnrýnandinn Valtýr Pétursson fæddist 27. mars árið 1919 og lést 15. maí 1988. Hann var afar afkastamikill málari og einn af brautryðjendum abstrakt málverksins á Íslandi. Eftir hann liggja um 2.400 verk, teikningar, olíumálverk, dúkristur, vatnslitaverk, mósaík og gvassverk. Valtýr var mikill heimsborgari og stundaði nám meðal annars í Boston, Flórens og París.

Hann var einn af stofnendum og þátttakendum hinna rótæku Septembersýninga og sýndi Valtýr strangflatarverk sín á September Sýningunni árið 1951. Árið 1952 um haustið var einkasýning Valtýs opnuð í Listvinasalnum þar sem listamaðurinn sýndi eingöngu abstrakt verk. Það sem var áberandi í verkum Valtýs á þessum árum voru lóðrétt L-laga form sem lögðust ofan á hvert annað. Valtýr var óhræddur við fjölbreytni í litavali og notaði hann gjarnan andstæða liti og jarðliti á móti svörtum og hvítum. Abstrakt geometrísk verk Valtýs eru tilraunakennd og geta þau gripið áhorfendann á áhrifaríkan hátt líkt og sjónhverfing. Á sýningunni Geómetríu sem var sýnd árið 2022 á Gerðarsafni voru nokkur af hinum mögnuðu gvassverkum Valtýs Péturssonar til sýnis.

Þetta verk kom inn í safneign árið 2017 og voru það erfingjar Valtýs sem færðu safninu verkið ásamt fleiri verkum. Um er að ræða gvass á pappír, 26,9 x 35 cm að stærð og er það frá árunum 1950 – 1959.

Í fræðslurými Gerðarsafns er hægt að skoða og fræðast um nokkur verk eftir Valtý Pétursson. Safnbúð Gerðarsafns selur þrjú mismunandi eftirprent af verkum Valtýs.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner