Open today

12:00-18:00

Sóley Ragnarsdóttir

Napkins at the end of my world

2022
Material Collection property
Size  25 x 25 cm

Sumarið 2024 var haldin einkasýning á verkum Sóleyjar á Gerðarsafni í sýningarstjórn Heiðars Kára Rannverssonar. Þar mátti sjá skrautleg málverk og skúlptúra, fagurlega málaðaða veggfleti og sérhannað veggfóður auk sýningarborða með einstöku servíettusafni.

Verkið samanstendur af hálfhringjum úr sevíettum þar sem annar er stærri en hinn. Á servéttuflötinn hefur verið raðað skeljum og rafi, allt fest með epoxý. Verkið er 25 x 25 cm að stærð. Hún velur vísvitandi iðnaðarefni til að fanga söfn sín.

Sóley Ragnarsdóttir skapar verk sem eru hnettir safnaðra hluta. Verk hennar eiga uppruna sinn í servéttusafni sem hún erfði frá ömmu sinni. Amma Sóleyjar byrjaði að safna servéttum þegar hún vann á Hótel Sögu á fimmta áratugnum og safnið óx með hverri veislu þar til næsta kynslóð tók við. Safnið ber vitnisburð um félagslíf og fjölskyldubönd. Fyrir Sóleyju, sem er fædd á Íslandi en fluttist með foreldrum sínum af landi brott barn að aldri, felur servéttusafnið í sér aukna merkingu. Safnið er efniviður hennar til að geta í þær eyður sem fjarbúð við stórfjölskylduna skapaði. Servétturnar eru vísar að þeim veislum sem hún missti af, þeim samböndum sem náðu ekki að þróast og þeim samtölum sem ekki urðu. Þær eru þó einnig áminning um þær stundir sem hún átti með ömmu sinni, því sambandi sem náði að skapast þrátt fyrir fjarveru og minningar af stað og stund.

Sóley Ragnarsdóttir (f. 1991) er dönsk-íslensk myndlistarkona búsett í Stenbjerg, Thy í Danmörku. Hún lauk meistaraprófi frá Städelschule í Frankfurt, Þýskalandi árið 2019 undir handleiðslu Amy Sillman, Monika Baer og Nikolas Gambaroff. Rætur Sóleyjar liggja til Íslands en Danmörk er heima.