Opið í dag

12:00-18:00

Danstími í anda Gurdijeff með Katrínu Gunnarsdóttur

GERÐUR
26.09.2024
18:00
–19:00

Katrín Gunnarsdóttir dansari og danshöfundur mun leiða þátttökuviðburð/danstíma í hreyfingum í anda Gurdjieff fimmtudaginn 26. september kl. 18:00 í Gerðarsafni. Mælt er með því að mæta í þægilegum fatnaði.

Gerðar Helgadóttur hafði mikinn áhuga á dulspeki en hún sótti fyrirlestra um dulspekikenningar George Gurdjieff hjá dansaranum og kennaranum Madame de Salzmann en saman þróuðu þau „heilaga dansa“ sem byggðust á hreyfingu eftir geómetrískri hrynjandi þar sem líkaminn verður að tengingu milli innri og ytri heims.

Þennan dag er Fimmtudagurinn langi og því verður opið til 21:00 í Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis á Fimmtudeginum langa. Öll eru hjartanlega velkomin!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner