Foreldrum og ungum börnum þeirra er boðið að eiga saman notalega stund í fræðslurými Gerðarsafns tvo fimmtudaga í mánuði. Heitt á könnunni, ýmis þroskaleikföng, bláu kubbarnir og teppi fyrir krílin verða á staðnum. Nóg pláss fyrir vagna og kerrur!
Tilvalið tækifæri til að hitta aðra foreldra með ung börn og dvelja á safninu í ró og næði.