Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnars Freys Guðmundssonar og Birnu Geirfinnsdóttur) um grafíska hönnun Harðar þann 18. apríl klukkan 14:00.
„Hörður Ágústsson (1922–2005) átti afkastamikinn feril á sviði grafískrar hönnunar og er óhætt að telja hann á meðal helstu braut ryðjanda nýrra hugmynda í grafískri hönnun á Íslandi. Hann lagði einnig mikilvægan grunn að skrásetningu á sögu grafískrar hönnunar hérlendis.“
–úr texta Birnu Geirfinnsdóttur, Andrými flatarins, í sýningarskrá.
Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn kjarna sjónmenningar.
Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Verkin á sýningunni þvera það sem hefðbundið væri flokkað sem myndlist og hönnun sem tengja fullkláruð verk, undirbúningsverk og hugmyndavinnu saman. Í þessari formrænu könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.
Sýningarstjórn sýningarinnar er í höndum Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio.