Opið í dag

12:00-18:00

GETA | Elskaðu náungan | Rainy Siagian

FJÖLSKYLDUSTUNDIR Á LAUGARDÖGUM
25.04.2026
13:00
–15:00

Elskaðu náungan er samfélagslegt útsaumsverk eftir Rainy Siagian þar sem þátttakendur koma saman við borð til að sauma og ræða hugmyndina um heimili. Hvað það þýðir heimili, hvernig fólki líður þegar það flytur, hvað það felur í sér að yfirgefa heimili og hvernig hægt er að skapa nýtt.
Samsköpunin hvetur þátttakendur til að opna hugann, einbeita sér við að hlusta á aðra og deila eigin reynslu. Elskaðu náungan verður þannig vettvangur tengsla, þar sem fólk getur hist, spjallað og kynnst „náunga“ sínum í víðustu merkingu orðsins.

Rainy Siagian (f. 1994) er listamaður og rannsakandi, fædd í Indónesíu og uppalin í Belgíu. Verk hennar spretta af djúpum áhuga á fræðilegum, líkamlegum, hugmyndafræðilegum, pólitískum og gagnrýnum víddum rýmis. Hún lítur á rými sem huglæga heild í stöðugri mótun, sem forsendu samfélagslegrar virkni og hluti af

Við gerð verka sinna sækir Siagian í aðferðarfræði flökkukenninga sem fjalla oft um það að tilheyra. Listsköpun hennar spannar ýmsa miðla, þar á meðal texta, ljósmyndun, rýmis íhlutanir og mat. Með þessum aðferðum skoðar hún og dregur í efa hvernig við skynjum og tengjumst þeim rýmum sem við búum í .

Hún býr og starfar til skiptis í Brussel og Reykjavík.