Opið í dag

12:00-18:00

Gjörningakvöld | Improv for Dance Enthusiasts

29.04.2026
20:00
–22:00

Improv for Dance Enthusiasts býður gestum á gjörningakvöld tileinkað skemmtilegri óhlýðni í Gerðarsafni!
Í samstarfi við áhorfendur munu flytjendur kanna hvernig hægt sé að ögra ríkjandi viðmiðum án þess að umhyggja, skýrleiki og samþykki hverfi frá. Kvöldinu er sýningarstýrt af listasamsteypunni Improv for Dance Enthusiasts, sem mun færa áhorfendum verkfæri til þess að eiga í öruggum samskiptum við flytjendur, rýmið og hvert annað.

Listamenn verða tilkynntir síðar!

Gjörningakvöldin á Gerðarsafni eru skipulögð í samstarfi við Hamraborg Festival Aðgangur ókeypis og öll velkomin