Verið velkomin í grafíksmiðju í Gerðarsafni laugardaginn 7. júní frá 15:00-17:00.
Í smiðjunni kynnir Salka Rósinkranz myndlistarmaður okkur fyrir undirstöður í grafíklist og hver þátttakandi gerir sína eigin dúkristu. Smiðjan er haldin í tengslum við sýninguna Barböru með verkum eftir Barböru Árnason.
Smiðjan hentar börnum á grunnskólaaldri og þátttaka er börnum að kostnaðarlausu.