Opið í dag

12:00-18:00

Grímusmiðja

VETRARFRÍ Í KÓPAVOGI
17.02.2024
13:00
–15:00

Njótum þess að skapa saman alls kyns grímur úr margbreytilegum og litríkum efnivið. Pappadiskum, pípuhreinsurum, glimmeri og fjöðrum.

Elsta gríman sem fundist hefur er um 9000 ára gömul. Hefðin er rík og á sér mikla merkingu. Grímur hjálpa til við að koma hugmyndaflugi barnsins af stað og gefa barninu tækifæri til að stíga inn í aðrar aðstæður. Grímur virkja ímyndunaraflið, örva leik og efla félagslegan þroska og samkennd. Grímur eru líka frábær leið til að tengja börn við persónur í mismunandi sögum.

Smiðjan hentar vel fyrir börn og fjölskyldur. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Fjölskyldustundir á laugardögum sem styrkt er af lista- og menningarráði Kópavogs.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner