Opið í dag

12:00-18:00

Hér á ég heima

02.06.2024
–16.06.2024
her-a-eg-heima-scaled

Listamaður

Yuliana Palacios (MX/IS)

Hér á ég heima er myndbandsinnsetning eftir Yuliönu Palacios þar sem kafað er í það hvernig við festum rætur og búum okkur heimili í nýju umhverfi. Listakonan dregur upp innilega og hjartnæma mynd af ferðalagi innflytjandans; viðleitninni til að aðlagast og finnast hún eiga heima í framandi landi. Verkið er óður til innflytjenda á Íslandi og leikur á allan tilfinningaskalann á djúpan og næman máta. Yuliana Palacios er mexíkósk listakona sem hefur búið á Íslandi frá árinu 2016. Á þeim tíma hefur hún unnið sjálfstætt að eigin verkum en gjarnan átt í samstarfi við annað heimafólk. Hún stundar nú meistaranám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands.

Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík

Kvikmyndataka: Elvar Örn Egilsson

Tónlist og hljóðhönnun: Jón Haukur Unnarsson

Styrktar- og samstarfsaðilar:

Listahátíð

Rocinante Oaxaca

Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir

Stella Ögmundsdóttir

Fözz Studio

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner