Opið í dag

12:00-18:00

Jeremy Deller: Landlæg hamingja

16.05.2026
–06.09.2026
2025-JD-TriumphOfArt-NationalGallery-London.instal.741
Jeremy Deller

Sýningarstjórn

Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir

Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili með þeim sem mæta henni. Sýning Deller tekur yfir báða sali Gerðarsafns með Triumph of Art (2026) og Warning Graphic Content (1993-2026).

Triumph of Art (2026) er nýjasta verk Deller, frumsýnt í Gerðarsafni. Innsetning sem fangar samfélagslegt „mega“samstarf þar sem Deller vann gjörninga með áhugaleikurum, listafólki, tónlistarfólki, kraftlyftingarfólki og sundballerínum víðsvegar um Bretland.

Warning Graphic Content (1993-2026) er eins konar yfirlitssýning prentverka Deller. Þau fanga mikla umrótatíma og vísa í sögulega atburði og þekktar persónur. Verkin, sem birtist oft í almannarýmum, spretta upp úr grasrót og streitast gegn því að vera fínpússuð eða háfleyg. Mörg verkanna eru unnin í samstarfi við grafíska hönnuðinn Fraser Muggeridge.

Jeremy Deller (f. 1966, London) er einn þekktasti samtímalistamaður Bretlands. Hann hlaut Turner-verðlaunin árið 2004 og var fulltrúi Bretlands á Feneyjatvíæringnum árið 2013.

Sýningarstjórn: Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir).

Mynd: Jeremy Deller, Triumph of Art, 2025