Opið í dag

12:00-18:00

Krakkaveldi : Plakatasmiðja

06.06.2026
13:00
–15:00

Hvaða skilaboð vilt þú setja út í heiminn?
Krakkaveldi býður til plakatasmiðju í tengslum við sýningu Jeremy Deller, Landlæg hamingja, á Gerðarsafni.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Unnið er að skilaboðum sem krakkarnir vilja miðla til samfélagsins og þau sett á plaköt sem svo eru sett upp í nærumhverfi safnsins.

Krakkaveldi er listhópur þar sem börn vinna í samstarfi við fullorðna að pólitískum listgjörningum. Krakkaveldi telur að fullorðnir gætu haft gott af því að hlusta meira á börn. Börn eru þriðjungur jarðarbúa en hafa þó minnst lýðræðislegt vald í samfélagi okkar – og Krakkaveldi vinnur að því að breyta því!