Opið í dag

12:00-18:00

Kyrrðarrými | ÞYKJÓ á HönnunarMars

20.05.2021
–30.05.2021
mynd_honnunarmars_2021-1
19.05.2021 – 06.06.2021 19.05.2021 – 06.06.2021 Kyrrðarrými er ný íslensk hönnunarvara ÞYKJÓ fyrir börn og foreldra þeirra til að skapa ró og næði í dagsins önn. Kyrrðarrýmin eru hugsuð sem húsgögn á heimilum sem og innsetningar á bókasöfnum, menningarhúsum og opinberum stofnunum. Hugað er að loftgæðum, birtu og hljóðvist við hönnun rýmanna. Kyrrðarrýmin eru innblásin af skeldýrum á borð við kuðunga, snigla og skjaldbökur og eru framhald af þeirri rannsóknarvinnu sem hófst með búningnum ,,Feludýrinu“ sem var kynntur á HönnunarMars 2020. Kyrrðarrýmin eru til sýnis í Gerðarsafni, en þau voru unnin á meðan hönnuðir höfðu listamannadvöl þar í janúar – apríl. Í sama rými má sjá höggmyndir Gerðar Helgadóttur sem Kyrrðarrýmin eiga í formfræðilegu samtali við. ——- Hönnuðir ÞYKJÓ eru staðarlistamenn Menningarhúsanna í Kópavogi árið 2021. Yfirskrift verkefnisins er ,,með augun í Náttúrufræðistofu, eyrun í Salnum og hryggjarstykkið í Gerðarsafni“. Titillinn vísar til þess hvernig unnið er með ólík skynfæri manna og dýra í hverju húsi fyrir sig, sem tengist þó saman í eina lífræna heild. Verkefnið hverfist annars vegar um að fá börn til að sjá heiminn með augum annarra dýrategunda, en hvetur þau líka til að staldra við og kynnast dýrinu í sjálfu sér. HönnunarMars 2021 er einn af hápunktunum í þessu umfangsmikla samstarfsverkefni. —– ÞYKJÓ er þverfaglegt hönnunarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði textíl-, leikfanga- og upplifunarhönnunar. Hönnuðirnir vinna náið með listafólki, vísindamönnum og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst – með börnum. ÞYKJÓ sérhæfir sig í búningum, innsetningum og listasmiðjum fyrir börn. Hönnunin miðar að þörfum barna og fjölskyldna og hvetur til gæðastunda. Í vöruþróunar- og framleiðsluferli sínu, leggja hönnuðirnir upp úr að nýta innlenda fagþekkingu og tækjabúnað úr fjölbreyttum iðngreinum; allt frá fléttun tága, til neta- og burstagerðar. Allt þetta miðar að því að halda staðbundinni framleiðslu og heiðra sérhæfða verkþekkingu. Hönnuðir ÞYKJÓ eru Sigríður Sunna Reynisdóttir, Ninna Þórarinsdóttir, Erla Ólafsdóttir og Sigurbjörg Stefánsdóttir. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir listamannadvöl ÞYKJÓ í Menningarhúsunum. Ljósmynd: Sigga Ella.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner