Opið í dag

12:00-18:00

Leiðsögn á spænsku | Hér á ég heima

Sumar í Kópavogi
08.06.2024
12:00
–13:00

Verið velkomin á leiðsögn á spænsku með Yuliönu Palacios, laugardaginn 8. júní kl. 14:00 í Gerðarsafni.

Hér á ég heima er myndbandsinnsetning þar sem kafað er í það hvernig við festum rætur og búum okkur heimili í nýju umhverfi. Listakonan dregur upp innilega og hjartanæma mynd af ferðalagi innflytjandans; viðleitninni til að aðlagast og finnast hún eiga heima í framandi landi. Verkið er óður til innflytjenda á Íslandi og leikur á allan tilfinningaskalann á djúpan og næman máta.
Verkið Hér á ég heima er hafið yfir mörk tungumáls og talar til gesta af ólíkum uppruna. Það er áhrifamikil hugleiðing um þrá manneskjunnar eftir því að tilheyra.

Yuliana Palacios er mexíkósk listakona sem hefur búið á Íslandi frá árinu 2016. Á þeim tíma hefur hún unnið sjálfstætt að eigin verkum en gjarnan átt í samstarfi við annað heimafólk. Hún stundar nú meistaranám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner