Opið í dag

12:00-18:00

Leiðsögn um Tölur, staði með Jóni Proppé

12.05.2024
14:00
–15:00

Verið velkomin á leiðsögn Jóns Proppé listheimspekings um Tölur, staði sunnudaginn 12. maí kl. 14:00.

Á sýningunni Tölur, staðir má sjá og upplifa nýja innsetningu eftir myndlistarmanninn Þór Vigfússon sem hann vinnur sérstaklega með sýningarsal Gerðarsafns í huga. Sýningin samanstendur af fjölda jafnstórra ferninga úr lituðu gleri sem dreifast um veggi salarins eftir ákveðinni reglu og mynda víxlverkun milli forma, lita og rýmis. Við fyrstu sýn virðist sýning Þórs lítillát og óhlutbundin innsetning sem leiðir hugann að verkum í anda geómetríu eða naumhyggju. En þrátt fyrir sparsamt efnisval og framsetningu má við nánari athugun greina flókna hugmyndalega nálgun á sjálft skúlptúrformið.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner