Opið í dag

12:00-18:00

List og náttúra | Loftsteinar og vígahnettir

27.03.2024
13:00
–15:00

Handleikum lofsteina og sjáum þegar vígahnettir springa með látum! Sævar Helgi Bragason sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs verður með vísindasmiðju fyrir börn og fjölskyldur í Gerðarsafni miðvikudaginn 27. mars kl. 13-15.

List og náttúra er verkefni sem er unnið í samstarfi við Náttúrufræðistofu Kópavogs. Náttúran erskoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.

Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner