Opið í dag

12:00-18:00

List og náttúra í Vetrarfríi

VETRARFRÍ Í KÓPAVOGI
20.02.2024
15:00
–17:00

Einföld smiðja eða leiðsögn fyrir börn milli 15 og 17. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar.

Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Náttúrufræðistofu Kópavogs en Þorgerður, Hulda og Sævar halda utan um smiðjuna.

Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.

Smiðjan hentar vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.

Hlökkum til að sjá ykkur!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner