Opið í dag

12:00-18:00

List og náttúra

01.02.2024
15:00
–17:00

Nú verður boðið upp á einfaldar smiðjur eða leiðsögn fyrir börn miðvikudaga frá kl. 15-17 í Gerðarsafni. Verkefnið er í samstarfi við Náttúrufræðistofu Kópavogs og gengur undir heitinu List og náttúra. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar eftir leikskóla eða skóla.

Þorgerður, Hulda og Sævar halda utan um smiðjurnar. Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi.

Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.

Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.

Hlökkum til að sjá ykkur!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner