Opið í dag

12:00-18:00

Listamannaleiðsögn á Safnanótt

VETRARHÁTÍÐ Í KÓPAVOGI
02.02.2024
18:00
–18:45

Listamennirnir Joe Keys og Haraldur Jónsson leiða gesti um verk sín á sýningunni Venjulegir staðir í Gerðarsafni . Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.



Á sýningunni Venjulegir staðir eru ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys og Tine Bek; myndlist sem sprettur úr skynjun mannverunnar á umhverfi sínu. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að veita hversdeginum ýtrustu athygli og beygja venjuleikann, oft með því einu að benda á hann. Verkin bera vitni um hversdaginn sem listamaðurinn hefur hoggið lítil brot úr og fyllt vasa sína til að geta sýnt okkur gersemarnar.

Sýningarstjórar eru Hallgerður Hallgrímsdóttir og Brynja Sveinsdóttir.

Verk á ljósmynd er eftir Joe Keys.

Ljósmynd: Sigríður Rut Marrow.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner