Opið í dag

12:00-18:00

MEKÓ ratleikur

MEKÓ CREW
22.06.2023
10:00
–17:00

MEKÓ crew býður hressum krökkum að koma í ratleik um menningarhúsin og svæðið í kringum þau. Eina sem þarf að hafa meðferðis er farsími og góða skapið. MEKÓ Crew verður fyrir utan bókasafnið frá kl. 10 til 17 með bæklingana með ratleiknum. Hægt er að gera ratleikinn einn eða sem hópur.

Tilvalið fyrir hópa að koma og spreyta sig saman á skemmtilegum þrautum og spurningum í ratleik sérhönnuðum af MEKÓ Crew.

Hverjir eru MEKÓ Crew? Krummi, Bjarki og Linda eru 16-17 ára gömul og eru öll búsett í Kópavogi. Á veturna stunda þau nám við Versló og FG og í sumar munu þau bjóða upp á skemmtilega viðburði í menningarhúsunum. Viðburðirnir eru ætlaðir ungu fólki og verða fimmtudagana 22/6, 29/6, 6/7, 13/7 og 20/7.

Image by Freepik

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner