Opið í dag

12:00-18:00

OLÍS EYELASH AXIS

06.06.2026
–22.08.2026
2026_0601_15482400
Nanna Abell

Sýning Nönnu Abell , OLÍS EYELASH AXIS, opnar í skúlptúrgarði Gerðarsafns og Y gallery klukkan 15:00 laugardaginn 6. Júní. Abell dregur fram tóna, áferð, sérkenni í arkitektúr og staðbundnar sögur í verkum sem eru rótgróin hér, en mótuð úr fjarlægð.

„Verkin lengja bygginguna, þar sem frárennslisrör minnir á vír sem byrjar að liðast og snúast niður slétt ytra byrðið og í átt að jörðinni. Vafningar sem líkjast klifurplöntum eru festir þétt að gráum múr, spretta úr sprungu, eins og þeir reyni að ráðast inn í framhlið hússins. Flækt form birtist fyrir horn sem er bundið niður en teygir sig samt út og virðist ætla að flækja öryggismyndavél safnsins. Tvær kramdar olíutunnur liggja varlega á grösugum stöplum og trufla snyrtilega slegna grasflöt og varlega staðsett blómabeð.“