Opið í dag

12:00-18:00

Samtal | Ívar Brynjólfsson og Jón Proppé

18.02.2024
14:00
–15:00

Verið hjartanlega velkomin á samtal og leiðsögn Ívars Brynjólfssonar og Jóns Proppé listheimspekings um verk Ívars sunnudaginn 18. febrúar kl. 14:00 í Gerðarsafni.

Á sýningunni Venjulegar myndir eru ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Kristínar Sigurðardóttur, Lukasar Kindermann, Ragnheiðar Gestsdóttur og Tine Bek; myndlist sem sprettur úr túlkun mannverunnar á umhverfi sínu. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að brengla hversdaginn, snúa upp á venjuleikann og biðla til áhorfandans að túlka á sinn veg.

Fyrri fasi sýningarinnar, Venjulegir staðir, opnaði 13. janúar þar sem sýnd eru verk eftir Ívar Brynjólfsson, Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys og Tine Bek.

Aðgöngumiði á safnið gildir, frítt fyrir árskortshafa.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner