Opið í dag

12:00-18:00

Skúlptúr/skúlptúr/performans

12.11.2025
–25.01.2026
alfrun_6-1
Curro Rodriguez
Hekla Dögg Jónsdóttir
Jasa Baka
Kristín Helga Ríkharðsdóttir
Mjólk (Hlín Gylfadóttir, Karlotta Blöndal, Unnar Örn Auðarson)
Post Performance Blues Band (Álfrún Örnólfssdóttir, Hrefna Lind Lárusdóttir, Saga Sigurðardóttir)
Regn Sólmundur Evu
Styrmir Örn Guðmundsson

Sýningarstjórn

Jo Pawlowskx

Sýningin hvílir á skilum – í titrandi rýmum á milli einnar tilveru og annarrar. Líf okkar er uppfullt af endalausum tilfærslum og breytingum – þöglum eða skyndilegum, lúmskum eða yfirgnæfandi. Augnablikið áður en augnaráð mætast, rýmið á milli líkama á dansgólfinu. Kyrrðin áður en sólin birtir upp svartnættið. Þögnin eftir að hafa yfirgefið herbergi fullt af fólki, og flöktið í skjá í myrkrinu. Róin eftir partýið, þegar hjartað slær enn ört en heimurinn virðist hægari. Titringurinn í hálsinum þegar þú ert að fara að segja það.

Sýningin Skúlptúr/skúlptúr/performans kannar skörun og titring á milli höggmyndalistar og gjörningalistar þar sem skynjun, form og merking hliðrast. Skúlptúr ummyndast í gjörning; gjörningur líður yfir í mynd og hljóð; hljóð hliðrast í skúlptúr. Ekkert er statískt. Listafólk sýningarinnar eru Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Styrmir Örn Guðmundsson, Regn Sólmundur Evu, Curro Rodriguez, Jasa Baka, Post Performance Blues Band (Álfrún Örnólfssdóttir, Saga Sigurðardóttir, Hrefna Lind Lárusdóttir), Mjólk (Hlín Gylfadóttir, Karlotta Blöndal, Unnar Örn Auðarson) og Hekla Dögg Jónsdóttir. Sýningarstjóri er Jo Pawlowskx.

Sýningarröðin Skúlptúr/skúlptúr kannar skúlptúrinn í samtímanum og þróun þrívíðrar myndlistar, ekki einungis sem mikilvægur hluti listasögunnar heldur einnig sem hluti af lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar. Sýningarröðin sækir í tilraunamennsku og framúrstefnu Gerðar Helgadóttur.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner