Opið í dag

12:00-18:00

Sýningastjóraleiðsögn um Skúlptúr/Skúlptúr

JÓL Í KÓPAVOGI
06.12.2023
12:15
–13:00

Brynja Sveinsdóttir og Cecilie Cedet Gaihede bjóða upp á leiðsögn um sýninguna Skúlptúr / Skúlptúr. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

Sýningaröðin Skúlptúr/Skúlptúr er nú haldin í fimmta skiptið í Gerðarsafni þar sem leitast er við að kanna hver staða höggmyndalistar sé í samtíma okkar. Sýningaröðin kannar þróun þrívíðrar myndlistar með vísunum í frumkvöðlastarf Gerðar Helgadóttur (1928-1975) innan íslenskrar höggmyndalistar. Titillinn vísar til sýningarinnar Skúlptúr/skúlptúr/skúlptúr, samsýningar 29 listamanna sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 1994 og gaf veigamikið yfirlit yfir höggmyndalist þess tíma.

Þessi fimmta sýning er með öðru sniði en áður þar sem leitast er við að taka stöðu á skúlptúrnum í dag með samsýningu tíu listamanna. Enginn einn samnefnari er með þeim listamönnum sem taka þátt í sýningunni en í samtali verka þeirra má finna forvitnilegar vísanir í stöðu skúlptúrsins sem listmiðils, möguleika hans og samband við samtíma okkar.

/

Listamenn/Artists

Andreas Brunner
Anna Líndal
Claire Paugam
Elísabet Brynhildardóttir
Eygló Harðardóttir
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar
Ingrid Ogenstedt
Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð
Martha Haywood
Raimonda Sereikaitė

Sýningarstjórar/Curators
Brynja Sveinsdóttir
Cecilie Cedet Gaihede

Leiðsögnin er liður í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner