Opið í dag

12:00-18:00

Um ritskoðun og þöggun | Að rekja brot

MENNING Á MIÐVIKUDÖGUM
12.04.2023
12:15
–13:00

Natasha S, ljóðskáld, þýðandi, blaðamaður og ritstjóri fjallar um menningu á tímum samþjöppunar og ritskoðunar. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýninguna Að rekja brot ( Tracing Fragments) sem nú stendur yfir í Gerðarsafni.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Nánar:

Saga Rússlands endurtekur sig, ritskoðun og kúgun er ekki nýtt fyrirbæri í stærra samhengi, en það er nýtt fyrir núverandi kynslóð. Árið 2022 var það fimmta bylgja af fólksflutningi frá Rússlandi frá byrjun 20. aldar, margir þeirra eru menntamenn og listafólk.

Natasha mun segja frá örlögum rússneskra rithöfunda sem unnu í útlegð á 20. öldinni og sögum þeirra sem standa frammi fyrir svipuðum aðstæðum núna.

***

Um Natöshu S.

Natasha S. flutti til Íslands frá Rússlandi árið 2012. Hún er menntuð í blaðamennsku og hefur skrifað greinar í lausamennsku um nýja heimaland sitt. Árið 2016 útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í íslensku sem annað mál og með sænsku sem aukagrein.

Natasha S. hefur þýtt íslensk skáldverk á rússnesku, nú síðast Kviku eftir Þóru Hjörleifsdóttur. Hún ritstýrði safnriti ljóða skálda af erlendum uppruna, sem nefnist Pólífónía af erlendum uppruna, og var auk þess einn höfunda þess. Þá er hún annar tveggja ritstjóra að greinarsafni sem Bókmenntaborgin í Reykjavík gefur út á næsta ári. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Máltaka á stríðstímum sem kom út árið 2022 og er fyrsta ljóðabók hennar.

“’

Fyrirlestur Natöshu S. er hluti af hádegisviðburðaröð í tengslum við sýninguna Að rekja brot vorið 2023.

  • Miðvikudagur 22.febrúar: „Þau vilja norræn andlit, norrænt hár og norræna list“. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur
  • Miðvikudagur 8. mars: (Ó)sýnileiki. Tengsl við fortíð í brothættri samtíð. Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur
  • Miðvikudagur, 29. mars: Að afmiðja hvítleika í listum. Chanel Björk Sturludóttir, baráttu- og fjölmiðlakona
  • Miðvikudagur, 12. apríl. Um ritskoðun og þöggun. Natasha S, rithöfundur

Menning á miðvikudögum er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner