Opið í dag

12:00-18:00

Útgáfufögnuður | Heimur Gerðar Helgadóttur

03.12.2023
16:00
–18:00
Heimur Gerðar

Verið hjartanlega velkomin á útgáfufögnuð og listasmiðju fyrir glænýja barnabók um Gerði Helgadóttur sem ber titilinn Heimur Gerðar Helgadóttur, sunnudaginn 3. desember kl. 16:00 í Gerðarsafni. Í bókinni fáum við að kynnast ævi og ferli Gerðar á spennandi hátt og spreyta okkur á gerð eigin listaverka.

Bókin er afrakstur samstarfs Gerðarsafns við Helgu Páleyju Friðjónsdóttur listamann og Hrafnhildi Gissurardóttur sérfræðing í fræðslu og er unnin með stuðningi frá Safnsjóði.

Börn og fjölskyldur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin. Helga Páley Friðjónsdóttir mun leiða listsmiðju fyrir börn og léttar veitingar verða í boði.

Hlökkum til að sjá ykkur!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner