Opið í dag

12:00-18:00

Vetrarfrí I Sköpun í Stúdíói Gerðar

05.03.2020
13:00
–16:00
Í vetrarfríinu dagana 5. og 6. mars verður boðið upp á skapandi samverustundir í Stúdíói Gerðar. Börn, fjölskyldur og aðrir gestir geta gert listaverk úr spennandi efnivið, leikið með form og liti og gert stóra skúlptúra úr risakubbum safnsins. Fimmtudagur 5. mars kl. 13:00-16:00 – Vatnslitahorn og ljósaborð fyrir börnin í Stúdíói Gerðar. Föstudagur 6. mars kl. 13:00-16:00 – Ljósmyndabrenglun – Hallgerður Hallgrímsdóttir ljósmyndari býður fólki að búa til sína eigin camera obscura pappakassamyndavél og kynnast því hvernig myndavélin virkar.  Sköpun í Stúdíó Gerðar er opin fyrir alla og aðgangur ókeypis!
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner