Opið í dag

12:00-18:00

Fjörutíu skynfæri | LHÍ

30.08.2020
–13.09.2020
lhi_utskrift_2020_badesign_facebook_hq-rett-002-3
30.08.2020 – 13.09.2020 30.08.2020 – 13.09.2020 Fjörutíu skynfæri er heiti útskriftarsýningar nemenda í hönnun og arkitektúr árið 2020. Fjörutíu skynfæri Á sýningunni má sjá verk eftir nemendur sem útskrifuðust úr hönnun og arkitektúr frá Listaháskóla Íslands í júní 2020. Verkin eru lokapunkturinn á þriggja ára lærdómsferli nemenda og miðla persónulegri sýn þeirra á viðfangsefni sem snerta bæði samfélagslegan veruleika, tilfinningalíf, umhverfi og vissu og óvissu um framtíðina. Verkefnin bera hvert á sinn hátt vott um skapandi og frjóa nálgun í hönnun og arkitektúr. Öll byggja þau á samstarfi og samvinnu, þekkingarleit, tilfinningum og klókindum þar sem við sögu koma í það minnsta fjörutíu skynfæri og skynjanir, s.s. hungur, þorsti, jafnvægi, kláði, kvíði, snerting, hjartsláttur, skjálfti, hreyfing, hljóð og hiti. Sýningastjórar eru Anna María Bogadóttir, Atli Bollason, Eva María Árnadóttir og Ólöf Rut Stefánsdóttir. Gerðarsafn er opið alla daga frá kl. 10.-17. Ókeypis aðgangur á meðan á útskriftarsýningu LHÍ stendur. VIÐBURÐARDAGATAL Sunnudagur 30.08.2020 Sýning vöruhönnunar, grafískrar hönnunar og arkitektúrs opnar fyrir almenningi í safninu. Þriðjudagur 01.09.2020 Tískusýning fatahönnunarnema fer fram í benni útsendingu á visir.is, aðeins verður hægt að fylgjast með tískusýningunni á netinu. Fimmtudagur 03.09.2020 Sýning fatahönnunarnema opnar í Stúdíói Gerðar, fyrsta hæð Fimmtudagur 03.09.2020 Útgáfuhóf Mænu 2020 Anddyri LEIÐSAGNIR SUNNUDAGINN 06.09.2020: *miðast við fjöldatakmarkanir 12:00 – 13:00 Leiðsögn um sýningu fatahönnunarnema Linda Björg Árnadóttir, sýningarstjóri námsbrautar í fatahönnun Stúdíó Gerðar, fyrsta hæð 13:00 – 14:00 Leiðsögn um sýningu arkitektúrnema Anna María Bogadóttir, sýningarstjóri námsbrautar í arkitektúr Hefst í anddyri safnsins 14:00 – 15:00 Leiðsögn um sýningu nemenda í grafískri hönnun Atli Bollason, sýningarstjóri námsbrautar í grafískri hönnun Hefst í anddyri safnsins 15:00 – 16:00 Leiðsögn um sýningu vöruhönnunarnema Ólöf Rut Stefánsdóttir, sýningarstjóri námsbrautar í vöruhönnun Hefst í anddyri safnsins
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner