Opið í dag

12:00-18:00

MA 2017 Útskriftarsýning

06.05.2017
–21.05.2017
mia4-1
06.05.2017 – 21.05.2017 06.05.2017 – 21.05.2017 Útskriftarsýning meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands var haldin í Gerðarsafni 6.maí til 21. maí 2017. Alþjóðlegt meistaranám í myndlist og hönnun hófst í Listaháskóla Íslands haustið 2012 og var þetta fjórði árgangur meistaranema sem sýndi útskriftarverkefni sín í Gerðarsafni. Á sýningunni mátti sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi þar sem fimm hönnuðir og fimm myndlistarmenn fengu tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum undir leiðsögn framúrskarandi hönnuða og myndlistarmanna. Áhersla var lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verkefni á sviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi. Útskriftarsýning meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands var haldin í Gerðarsafni 6.maí til 21. maí 2017. Útskriftarnemar í hönnun: Angela Edwiges Salcedo Miranda, Lisa Gaugl, Maria Enriqueta Saenz Parada, Sölvi Kristjánsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir Útskriftarnemar í myndlist: Ásgrímur Þórhallson, Florence So-Yue Lam, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Maria Helene Van Veen Aas, Myrra Leifsdóttir. Sýningarstjóri: Dorothée Kirsch Mynd: Maria Helene Van Veen Aas Maria Helene Van Veen Aas
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner