Opið í dag

12:00-18:00

Óræð lönd : Samtöl í sameiginlegum víddum

11.09.2021
–09.01.2022
bryndismark-adalmynd-6
11.09.2021-09.01.2022 Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021 Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021 Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021 Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. Þau staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Mörg af verkefnum þeirra hafa orðið til í listamannadvölum erlendis á stöðum á borð við Norðurpólinn, Svalbarða, Alaska, Grænland og Ísland. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum. Þetta er í fyrsta sinn sem jafn yfirgripsmikið yfirlit yfir verk þeirra hefur sést. Þau staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Mörg af verkefnum þeirra hafa orðið til í listamannadvölum erlendis á stöðum á borð við Norðurpólinn, Svalbarða, Alaska, Grænland og Ísland. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum. Þetta er í fyrsta sinn sem jafn yfirgripsmikið yfirlit yfir verk þeirra hefur sést. Sýningarstjóri: Becky Forsythe Sýningarstjóri: Becky Forsythe Sýningin er samstarfsverkefni við Listasafnið á Akureyri. Viðburðadagskrá verður haldin í báðum söfnum á meðan á sýningunni stendur. Sýningin er samstarfsverkefni við Listasafnið á Akureyri. Viðburðadagskrá verður haldin í báðum söfnum á meðan á sýningunni stendur. Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði og Safnasjóði. snaebjornsdottirwilson.com/ snaebjornsdottirwilson.com/
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner