Opið í dag

12:00-18:00

Snúningur | Hanna Dís Whitehead

17.01.2020
–21.06.2020
petur-thomsen-prelude-1-2014-2015-3
Hanna Dís Whitehead tekur annan snúning á fyrri verkum þar sem áhugaverðum efnivið, litum, formum og sögu er blandað saman á nýjan hátt. Orka keðjuverkunar leiðir eitt af öðru, ein hugmynd ýtir á þá næstu. Stundum væri tilvalið að taka annan snúning á gömlum hugmyndum með nýja vitneskju í farteskinu. Verkefni og aðferðir hafa þróast áfram og því komin tími til að fá á þau nýtt sjónarhorn. Á sýningunni verða gerðar tilraunir til að búa til húsgögn úr því sem áður var ílát, blanda saman nýjum aðferðum á fyrri hugmyndir og fá sömu sjónrænu efnistilfinningu út úr ólíkum efnivið. Sum ferli fá tækifæri til að klárast en önnur taka flugið. Skúffuhugmyndir líta loksins dagsins ljós.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner