Opið í dag

12:00-18:00

Opnun | Corpus

Sumar í Kópavogi
20.08.2025
18:00
–20:00

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Corpus miðvikudaginn 20. ágúst kl. 18:00 í Gerðarsafni.

Líkaminn er lifandi fyrirbæri í sífelldri sveiflu milli sjálfsins og annars, menningar og náttúru, hins séða og óséða. Listamenn Corpus fá okkur til að íhuga hann nánar, með því að nota áferðir, nærveru, efniskennd, litbrigði og framvindu til að takast á við flókin tengsl kyns, kynþáttar, vistfræði og tækni. Hér er líkaminn ekki stöðugt ílát heldur síkvikur og samofinn umhverfi sínu.

Á Corpus má finna verk eftir Arvidu Byström, Herttu Kiiski, Jeanette Ehlers, Klāvs Liepiņš & Renāte Feizaka, Salad Hilowle og Sunnevu Ásu Weisshappel, sem vinna innan efnisleika, vefnaðar, skúlptúrs og ljósmyndunar. Hvert á sinn hátt rannsaka listamennirnir tengsl okkar við eigin líkama, bæði í rými og í sambandi við aðrar verur, og stöðu líkamans í framþróunarmiðuðum heimi.

Vídeó stilla: Klāvs Liepiņš & Renāte Feizaka, Primordial loop, 2025.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner