Opið í dag

12:00-18:00

Leiðsögn um Corpus | Snærós Sindradóttir

26.10.2025
14:00
–15:00

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn með Snærós Sindraóttur um sýninguna Corpus sunnudaginn 26. október kl. 14:00 í Gerðarsafni.

Líkaminn er lifandi fyrirbæri í sífelldri sveiflu milli sjálfsins og annars, menningar og náttúru, hins séða og óséða. Listamenn Corpus fá okkur til að íhuga hann nánar, með því að nota áferðir, nærveru, efniskennd, litbrigði og framvindu til að takast á við flókin tengsl kyns, kynþáttar, vistfræði og tækni. Hér er líkaminn ekki stöðugur heldur síkvikur og samofinn umhverfi sínu.

Á Corpus má finna verk eftir Arvidu Byström, Herttu Kiiski, Jeanette Ehlers, Klāvs Liepiņš & Renāte Feizaka, Salad Hilowle og Sunnevu Ásu Weisshappel, sem vinna innan efnisleika, vefnaðar, skúlptúrs og ljósmyndunar. Hver á sinn hátt rannsaka listamennirnir tengsl okkar við eigin líkama, bæði í rými og í sambandi við aðrar verur, og stöðu líkamans í framþróunarmiðuðum heimi. Sýningarstjóri er Daría Sól Andrews.

Aðgöngumiði að safninu gildir. Frítt fyrir árskortshafa.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner