Við erum spennt að taka á móti ykkur á næsta Gjörningakvöldi en í þetta sinn verður viðburðurinn undir sýningarstjórn Oyun Daria Testo.
___
Þann 17. Júní, klukkan 20:00, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, bjóðum við ykkur á kvöldstund helgaða samhljómi ólíkra radda í Gerðarsafni.
Á þessum degi munum við kanna togstreituna sem felst í sjálfsmyndinni, hvað það er að tilheyra og skoða gagnkvæm tengsl þvert yfir landamæri. Við munum varpa fram spurningum og íhuga þær í sameiningu.
Ein af lykilspurningum þessa dags er: Hver erum „við“?
Hvað ef „við“, sem tilheyrum þjóð, værum ekki skilin sem afmörkuð sjálfsmynd, heldur sem eitthvað óákveðnara og hverfulla, eitthvað sem tekur á sig mynd í augnablikum samveru og samskipta, en leysist svo upp á ný? Eitthvað sem gefur röddum rými til að vera áfram margbreytilegar, í tengslum hver við aðra, ekki aðeins í gegnum mannlegar hugmyndir heldur einnig í tengslum við það sem er meira-en-mannlegt (e. more-than-human). Hvað ef við upplifðum hugmyndina um þjóð ekki sem eina sameiginlega rödd, heldur sem fjölradda kór?
Listafólk: Aephie Chen, Martyna Daniel, Diana Burkot, Magdalena Tworek and Janosch Bela Kratz.
___
(Ljósmynd: Aephie Chen við Beinan-á í suðausturhluta Taívan, í kjölfar jarðskjálfta og fellibyls. Amma Aephie og ættfólk hennar eiga djúp tengsl við þessa á. Ljósmyndari: Ingvar Haukur Guðmundsson.)