Hvernig er dagur í lífi kornungs myndlistarmanns? En ein vika?
Þann 6. – 10. Júlí stendur Gerðarsafn fyrir sumarnámskeiði þar sem börn á aldrinum 6 – 9 ára fá að spreyta sig á forvitnilegum aðferðum í heimi myndlistarinnar. Við munum kanna miðla á borð við skúlptúr, ljósmyndir, og leir, en samhliða því verður lögð áhersla á leiki og útiveru.
Í lok vikunnar verður svo pítsupartí fyrir krakkana og uppskerusýning fyrir foreldra þar sem afrakstur unga listafólksins verður til sýnis.
Hekla Kollmar, Oliver Devaney og Svava Þorsteinsdóttir leiða námskeiðið.