Opið í dag

12:00-18:00

Leiðsögn: Fraser Muggeridge um sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller

26.08.2026
18:00
–18:00

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn með Fraser Muggeridge um sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller miðvikudaginn 26. ágúst klukkan 18:00.

Fraser er grafískur hönnuður frá London sem hefur unnið með Jeremy Deller frá 2012 við að móta grafísku verkin hans. Leiðsögn hans mun fjalla um lykil verk sýningarinnar Warning Graphic Content (1993-2026) þar sem hann segir frá hvernig þau komu til, hvernig þeir Deller vinna saman, leturvinnslu plakatana, prentferlum og ásetningi.


Fraser Muggeridge er einnig gestaprófessor við Listaháskóla Íslands.

Nánar um sýninguna:


Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili með þeim sem mæta henni. Sýning Deller tekur yfir báða sali Gerðarsafns með The Triumph of Art (2026) og Warning Graphic Content (1993-2026).

The Triumph of Art (2026) er nýjasta verk Deller, frumsýnt í Gerðarsafni. Innsetning sem fangar samfélagslegt „mega“samstarf þar sem Deller vann gjörninga með áhugaleikurum, listafólki, tónlistarfólki, kraftlyftingarfólki og sundballerínum víðsvegar um Bretland.

Warning Graphic Content (1993-2026) er eins konar yfirlitssýning prentverka Deller. Þau fanga mikla umrótatíma og vísa í sögulega atburði og þekktar persónur. Verkin, sem birtist oft í almannarýmum, spretta upp úr grasrót og streitast gegn því að vera fínpússuð eða háfleyg. Mörg verkanna eru unnin í samstarfi við grafíska hönnuðinn Fraser Muggeridge.

Jeremy Deller (f. 1966, London) er einn þekktasti samtímalistamaður Bretlands. Hann hlaut Turner-verðlaunin árið 2004 og var fulltrúi Bretlands á Feneyjatvíæringnum árið 2013.

Sýningarstjórar sýningarinnar eru Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir).