Opið í dag

12:00-18:00

Hamraborg Festival: Síbreytilegt skynjunarlandslag

HAMRABORG FESTIVAL
30.08.2026
14:00
–16:00

Skemmtileg vinnustofa fyrir börn og fjölskyldur þar sem hljóð, hreyfing og leir sameinast. Þátttakendur
skapa í sameiningu síbreytilegt skynjunarlandslag í gegnum tónlist, snertingu og ímyndunaraflið. Með því
að nota endurnýttar flöskur munu þátttakendur smíða vatnsxýlófón sem margir geta spilað á samtímis.
Hljóðmynd skúlptúrsins er mótanleg eftir því sem vatni er bætt við eða fjarlægt.

Komdu og leiktu þér með Geta!


Þessi leiksmiðja er í boði GETU, óhagnaðardrifinna grasrótarsamtaka sem skapa opin samfélagsrými í
gegnum listir, leiksmiðjur og félagslegar samkomur. Samtökin stuðla að samstarfi milli staðbundinna og
alþjóðlegra listamanna og stuðla að menningartengslum. Leiksmiðjunni er stýrt af Natalia Duarte
Jeremías og Yi Jen Chang.

Um kennarana:

Natalia er víóluleikari og kennari frá Kosta Ríka, búsett í Reykjavík. Verk hennar beinast að þátttöku í
tónlistarsköpun með ungum börnum og fjölmenningar-fjölskyldum. Hún hefur stýrt verkefnum í Kosta
Ríka, á Spáni, Ítalíu og Íslandi og kemur reglulega fram með hljómsveitum og kammersveitum. Hún
stundar nú doktorsnám í tónlistarkennslufræðum við Háskóla Íslands.


Yi Jen er listmeðferðarfræðingur sem vinnur með einstaklingum og samfélögum sem takast á við
fólksflutninga, brottflutning og lífsbreytingar. Í starfi sínu sameinar hún hreyfingu, myndlist, tónlist,
leikhús og ljóðlist til að efla seiglu, tengsl og ímyndunarafl. Hún hefur unnið með frjálsum
félagasamtökum og að samfélagsverkefnum sem styðja við flóttafólk og samfélög frá átakasvæðum og er
nú að ljúka meistararannsókn sinni í listmeðferð við European Graduate School.