Opið í dag

12:00-18:00

List og Náttúra: Plánetusmiðja

21.10.2026
16:00
–17:00

Verið velkomin í plánetusmiðju í Náttúrusafni miðvikudaginn 21. október frá 16:00-17:00!

Aðgangur ókeypis og allt efnið er á staðnum.

Í smiðjunni búum við til reikistjörnur, plánetur og önnur himintungl. Við munum fyrst skoða okkar eigið sólkerfi til að fá innblástur. Næst lítum við út fyrir það – til fjarreikistjarna, tungla annarra reikistjarna, stjarna í öðrum vetrarbrautum og svarthola. Leiðbeinendur smiðjunnar eru Agata og Styrmir, listamenn og kennarar í listum. Þau vinna með málverk, skúlptúr og gjörningalist. Þau bjuggu til líkan af sólkerfinu í nýuppgerðu Náttúrusafni.