Opið í dag

12:00-18:00

Hversdagsleg teikning með Helgu Páley

11.11.2026
12:15
–13:00

Verið velkomin á teiknismiðju með myndlistarkonunni Helgu Páleyju Friðþjófsdóttur, miðvikudaginn 11. Nóvember klukkan 12:15 – 13:00.

Aðgangur ókeypis!

Í þessari hádegis smiðju sækjum við innblástur í verk Valgerðar Briem og skoðum hvernig hversdagsleg augnablik, hlutir og smáatriði geta orðið að efniviði í myndlist. Þátttakendur vinna með eigin upplifanir  og skapa teikningar þar sem hið hversdagslega fær nýtt samhengi í gegnum frjálsa teikningu og leik. Helga Páley (f. 1987) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur helst málverk með blandaðri tækni ásamt teikningum á pappír. Myndirnar byggjast upp í lögum og taka oft miklum breytingum í ferlinu, þar sem innsæi og tilraunir fá að leiða verkið áfram.