Verið velkomin á fyrirlestur um mörkin á milli myndlistar og menningarminja með Ágústu Kristófersdóttur laugardaginn 14. nóvember klukkan 14:00.
Málverk, útskurður, útsaumur og ýmiss konar handverk eru varðveitt sem þjóðlegur menningararfur og eiga sjaldan heima í sömu húsakynnum og myndlist þó þessi verk séu ekki síður hluti af sögu sjónlista á Íslandi. Í erindinu verður fjallað um hvernig íslenskir myndlistarmenn fyrr og nú hafa leitað í menningararfinn og nýtt hann í verkum sínum. Jafnframt verður velt upp þeirri spurningu hvort aðgreiningin milli menningarminja og myndlistar sé alltaf gagnleg og hvaða áhrif hún hefur á skilning okkar á íslenskri sjónlistasögu.
Ágústa Kristófersdóttir er framkvæmdastjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands og er með próf í sagnfræði og safnafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað á vettvangi safna í rúman aldarfjórðung, við söfn bæði á sviði menningarminja og myndlistar.
Meðfylgjandi er samsett úr mynd af kistli eftir Bólu Hjálmar og Höfðaletri Valgerðar Briem.